Kidlink hefur víðtæka reynslu af menntatengdum verkefnum sem hvetja nemendur til þess að skrifa og læra. Aðferðin hefur verið þróuð og notuð í kennslustofum síðan 1990. Við vitum að þetta virkar! Nýungin í Hver er ég? verkefninu er sú að við höfum valið bestu verkefnin okkar og viðfangsefni, sameinað þau í heildstætt verkefni á mörgum tungumálum og klæðskerasaumað verkefnið fyrir kennara. Verkefnið hefur verið hannað til að standa vörð um tungumál og menningu ásamt því að hvetja til samvinnu milli nemenda með því að deila upplýsingum milli menningarsvæða og byggja upp vináttu í heimsálfunni. Verkfæri verkefnisinsPóstlistar Kidlink eru aðal hugbúnaðurinn sem notaður er til samskipta og stutt af eigin spjallrásum Kidlink. Nemendur munu styrkja þáttöku sína og samræður við aðra með því að setja upp vefsíður á www.kidlink.org. Ef Kidlink hefur ekki nú þegar póstlista fyrir kennara og nemendur á þínu tungumáli þá hjálpum við þér til að setja það upp. Á sama tíma þá gætum við beðið menntayfirvöld í landinu þínu um fjárhagslegan stuðning til verkefnisins. Við höfum gert það nú þegar í nokkrum löndum. Verkefnið í heild er þýtt af ensku á öll opinber tungumál verkefnisins. Verkefnislýsingar, góð ráð fyrir kennara, verkefni, tengingar í upplýsingar, leiðbeiningar með verkefnum, svör við oft spurðum spurningum. Opinber tungumál þátttakenda eru tungumál þar sem menntayfirvöld hafa stutt við bakið á verkefninu. Ef þýðingar hafa ekki verið gerðar fyrir þitt tungumál, þá hjálpum við þér til að finna fjárhagslegan stuðning til þess. Þýðingar geta einnig verið gerðar af sjálboðaliðum eða að þú getur notað lýsinguna á öðru tungumáli. Samhæfing og stuðningurVerkefnið hefur verið gert af reyndum Kidlink kennurum og reynslumikið fólk frá Kidlink mun samhæfa verkefnið milli tungumálasvæða og veita kennurum stuðning. Þau hafa góða þekkingu á hvernig skipulag Kidlink er, reynslu af viðfangsefnunum úr eigin kennslustofu og vita hvernig á að vinna vel með öðrum af mismunandi menningarsvæðum. Hvert tungumál verkefnisins hefur verkefnisstjóra. Hann vinnur beint með kennurum á meðan á verkefninu stendur, veitir hjálp og stuðning. Verð ég að vera með í 8 mánuði?Nei. Þú getur verið með nemendum þínum í öllu verkefninu eða bara völdum verkþáttum. Hinsvegar verða allir nemendur að ljúka fyrsta hluta fyrsta verkefnisins (Hver er ég?) áður en þeir geta byrjað. (Athugið að þennan hluta er hægt að gera í Response.) Nemendurnir geta tekið þátt á öðru tungumáli en þeirra eigin og við styðjum það eindregið. Að læra af samstarfsmönnumStóri kosturinn við að vinna innan skipulags verkefnis með mörgum öðrum skólum er að vinna á netinu með samstarfsmönnum á "kennarastofu" Kidlink. Reynsla og svör við spurningum fæst frá öðrum sem eru að vinna að sama verkefni með sínum bekk. Mörgum reynist fengur að persónulegum tengslum og vináttu við kennara með svipaðan bakgrunn og áhugamál og slíkt mun áreiðanlega halda áfram og vera gagnlegt löngu eftir að verkenfinu lýkur. Fremur en að reyna að fá vit í 1000 bókamerki af veraldarvefnum þá er hér verkefni sem er í viðráðanlegum hlutum. Skiljanlegt. Í samhengi. Samþjappað. Með því að einblína á sameiginleg markmið og nota reyndar aðferðir, þá gerast spennandi hlutir í kennslustofunni þinni. Nemendum þínum mun líka vel. Því Hver er ég? verkefnið er klæðskerasaumað fyrir þau. |