Verkefnið Hver-er-ég?

Svona á að byrja!


Skoðaðu þetta!

Komdu sæl(l)!

Til að taka þátt í Hver -er-ég? verkefninu, þarftu að gera eftirfarandi:

  1. Ákveða á hvaða tungumáli þátttakan fer fram. Valkostirnir eru enska, norska, danska, samíska, þýska, franska, íslenska, sænska, spænska og portúgalska. (Fleiri tungumál geta bæst við síðar).
    • Ef þú ert kennari, viltu örugglega fá aðgang að "kennarastofunum" (póstlistar þeirra eru taldir upp neðar) á nokkrum tungumálum til þess að fá fleiri hugmyndir og upplýsingar um reynslu annarra kennara.
    • Bekkurinn þinn þarf ekki að vera þátttakandi á móðurmálinu. Sami bekkurinn getur jafnvel tekið þátt í mismunandi verkþáttum á mismunandi tungumálum.
  2. Finndu nafnið á póstlistanum sem notaður er fyrir þátttakendur á tungumálinu sem þú vilt nota til samskiptanna.
  3. Áskrift að listum á því tungumáli sem þú velur er nauðsynleg.
    Dæmi: Þú vilt taka þátt á norsku. Póstlistinn fyrir kennarana þar (sjá neðar) er Kidleader-Norsk. Auðveldasta leiðin til að nálgast hann, er að fara á þessa síðu. Smelltu á krækjuna hér fyrir framan og að lokum á krækjuna"Join or leave the list"

    Þú getur líka gerst áskrifandi með því að senda bréf til Listserv@listserv.nodak.edu. Í bréfið sjálft, skrifar þú þessa skipun (í fyrstu línu):

    subscribe kidleader-norsk Fullt nafn

    Ef þú heitir Jón Jónsson, þá ætti línan að vera svona: "subscribe kidleader-norsk Jón Jónsson". Þú gerist áskrifandi að öllum öðrum listum sem þú ætlar að nota til samskiptanna á sama hátt.

  4. Nemendurnir þurfa að svara spurningunum fjórum áður en þú leyfir þeim að taka þátt í verkefninu.
    Athugasemd 1: Nemendur þínir geta byrjað í hluta 1 án þess að svara spurningunum þar sem það er hluti verkefnisins að svara þeim.
    Athugasemd 2: Nemendur þínir þurfa ekki að svara þessum spurningum oftar en einu sinni.
    Gera nemendur að áskrifendum:Segjum sem svo að þú viljir láta nemendur þína taka þátt á ensku og að þú viljir að þeir vinni einungis á einu netfangi sem kallast t.d. "Barnaskóli xxx , 9. bekkur".Þá skaltu láta þá gerast áskrifendur að KIDWAI póstlistanum með því að senda tölvupóst til Listserv@listserv.nodak.edu. Settu eftirfarandi skipun sem innihald bréfsins (sem línu 1):

    subscribe Kidwai Barnaskóli xxx, 9. bekkur
    Vísbending: Smelltu héref þú hefur bara eitt netfang fyrir skólann.

  5. Þátttaka í verkhlutum er einföld.
  6. Þeir sem eru áskrifendur að póstlistum fyrir kennara frá byrjun verkþáttar, fá upplýsingar frá stjórnanda sem segir öllum hvenær verkefnið byrjar.
  7. Ef þú kemur inn á póstlistann of seint til að fá þessa tilkynningu, þá skaltu bara lesa lýsingu og kennsluáætlun verkefnisins og byrja.
  8. Ef þú ert í vafa, sendu tölvupóst til stjórnanda málasvæðisins, eða sendu þær spurningar sem þú hefur, á viðeigandi póstlista fyrir kennarana
    Athugið: Flesta mánuði verða fleiri en einn verkþáttur í gangi. Þess vegna þurfa þátttakendur að nota efnislínu (subject line) til þess að aðgreina verkþætti. Gerðu það með því að setja eftirfarandi texta í efnislínu bréfanna sem þú sendir:
    Verkhluti Auðkenning
    Hver er ég? WAI:
    Hvar á ég heima? WHERE:
    Hver eru réttindi mín? RIGHTS:
    Vinir mínir og fjölskylda FRIENDS:
    Hverjar eru rætur mínar? ROOTS:
    Ímyndað ferðalag VACATION:

Tungumál verkefnisins

Á norðlægum slóðum verður verkefnið unnið á þessum tungumálum:

Tungumál Póstlistar fyrir kennara Uppl. Póstlistar fyrir nemendur Uppl. Stjórnendur málasvæða
Enska KIDPROJ-COORD vefur KIDWAI Liz Exton       
Norska KIDLEADER-NORSK vefur KIDCAFE-NORSK vefur Knut Braatane
Danska KIDLEADER-DANSK vefur KIDCAFE2-DANSK
KIDCAFE3-DANSK
vefur Claus Berg
Samíska KIDLEADER-SAAMI KIDCAFE-SAAMI Mathis Bongo
Þýska KIDLEADER-DEUTSCH KIDCAFE-DEUTSCH Adrian Hohenstein
Franska KIDLEADER-FRENCH KIDCAFE-FRENCH André Rombauts
Íslenska KIDLEADER-ISLENSKA vefur KIDPROJ-ISLENSKA vefur Eygló Björnsdóttir
Ítalska KIDLEADER-ITALIANO KIDCAFE-ITALIANO Stellan Kinberg
Portúgalska KIDLEADER-PORTUGUESE vefur KIDWAI-PORTUGUESE Marisa Lucena
Spænska KIDLEADER-SPANISH vefur KIDPROJ-SPANISH vefur Lely Nunez

Á suðlægum slóðum verður verkefnið unnið á þessum tungumálum:

Þátttaka í KIDLINK - áskrift

Þú getur ekki sent bréf á Kidlink-listana nema vera áskrifandi að þeim. Það eru til upplýsingar sem sýna hvernig það er gert. Þú þarft að vera áskrifandi að öllum listum sem þú og nemendur þínir vilja nota. .

Að svara KIDLINK spurningunum fjórum

Í fyrsta skipti sem nemendur koma í KIDLINK þurfa þeir að svara KIDLINK spurningunum fjórum. Nemendur þurfa aldrei að svara þessum spurningum aftur meðan þeir eru í Kidlink

Fyrsti þáttur í verkefninu Hver-er-ég? verkefninu er hannaður til þess að hjálpa nemendum þínum að svara spurningunum fjórum. Þú getur notað þennan verkþátt með bekknum þínum á meðan á verkefninu stendur. Annar valkostur er að nota hefðbundna Kidlink leið eins og henni er lýst á RESPONSE síðunum sem gæti verið minni vinna.

Þegar svörin hafa verið samþykkt af hópnum (einungis til að staðfesta að þetta eru gild svör fremur en ruslpóstur frá utanaðkomandi aðilum), getur þú skoðað þau á vefnum.

Að lesa það sem aðrir nemendur skrifa

Farðu í töfluna hér fyrir ofan þar sem þátttökulöndin eru talin upp , og smelltu á póstlistann fyrir krakkana.

Til baka á byrjun síðu.


| Heimasíða verkefnisins | Hver er ég? | Hvar á ég heima? | Hver eru réttindi mín? |
| Vinir mínir og fjölskylda | Hverjar eru rætur mínar? | Ímyndað ferðalag |

Styrktaraðilar Hver-er-ég? verkefnisins
Umsjón vefs Odd de Presno. - Síðast uppfært 25. ágúst 1999. Þýðing: Eygló Björnsdóttir
Þú finnur alltaf nýjustu útgáfuna af þessari síðu á slóðinni: http://www.kidlink.org/kie/nls/english/welcome.html.
Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar.
Copyright ® 1999 Kidlink . Allur réttur áskilinn.