Vika 5 og 6
Velkomin í þriðja verkefni áætlunarinnar Hver er ég! Í þetta sinn lærum við
um framtíðarsýn þína, framtíðarsýn af betri heimi fyrir allar lifandi
verur. Börn eru fær um að sjá miklu stærri sýnir en nokkur fullorðinn. Þau
eru ekki haldin þeim fordómum og þeim ótta sem fullorðnum ávinnast með
árunum. Horfðu í kringum þig, líkar þér það sem fyrir augu ber? Hvernig
mundir þú fara að því að bæta ástandið örlítið?
Hvernig vilt þú að heimurinn verði þegar þú verðir eldri? Á tíu til fimmtán
árum tekur heimurinn mörgum breytingum, til góðs og ills. Í
alheimssamfélaginu verðum við að huga að velferð manna alls staðar í
heiminum. Til eru tvenns konar breytingar: Af náttúrunnar völdum og af
manna völdum.
Breytingar af náttúrunnar völdum verða vegna t.d. jarðskjálfta, fellibylja
og fárviðris. Tunglið veldur sjávarföllum, og hringferð jarðar um sólu
færir okkur árstíðirnar. Menn geta snúið breytingum til hins betra eða til
hins verra.
Hvaða sýn hefur þú um betri heim? Hver er draumur þinn?
Til umræðu:
- Meginatvinnan í borg eða landi fer eftir þeim starfsgreinum og þeim
hráefnum sem nóg er af þar. Sú er ástæðan fyrir því að finna í
framleiðsluiðnaði er mjög algeng sums staðar en landbúnaður er helsta
tekjulindin annars staðar. Hver er mikilvægasta tekjulindin í samfélagi
þínu? Í þorpi þínu? Í landi þínu? Hver eru að þínu mati áhrif þessarar
vinnu á heilbrigði íbúanna? Spillir vinna af þessu tagi umhverfinu?
- Hvað er iðnaðarríki? Er endilega velmegun samfara því að vera
iðnaðarríki? Hverjar eru hætturnar af völdum iðnaðar fyrir umhverfið?
- Það er ekki á valdi manna eða vísinda að stöðva eldfjall, fellibyl,
jarðskjálfta eða fárviðri. Náttúran er vitur og allt hefur sinn tilgang.
Þessar svonefndu “náttúruhamfarir" valda breytingum sem við ráðum alls ekki
við. Nefndu nokkrar. Hefur þú sjálf(ur) orðið vitni að eldsumbrotum,
fellibyl eða jarðskjálfta?
- Framfarir hafa gefið okkur ný lyf sem eru nauðsynleg til að lækna nýja
sjúkdóma. Er fólk heilbrigðara nú um stundir en fyrir hundrað árum? Veita
framfarirnar meiri hamingju? Hvers vegna fáum við nýja sjúkdóma?
- Á stundum eru fullorðnir svo uppteknir að þeir eru ekki í stakk búnir
til að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Mestu ánægjustundir
lífsins eru mönnum algjörlega að kostnaðarlausu. Nefndu fáeinar? Hvernig
farið þið í fjölkskyldu þinni að því að njóta lífsins?
- “Nágrannarnir eru okkar nánasta fjölskylda." Í þessum orðum felst að
við eigum að leitast við að hafa góð tengsl við nágranna okkar. Við getum
hjálpast að ef neyðartilvik kemur upp. Hverju fleira geturðu bætt við kosti
þess að vera “góðir nágrannar"? Ríki hafa líka nágranna. Hvernig geta ríki
verið “góðir nágrannar"?
- Fólk hefur mismunandi litarhætti og lögun. Ímyndaðu þér að í heiminum
væru milljónir manna sem allir litu eins út! Ef við værum öll eins í útliti
hvernig ættum við þá að þekkja hvert annað? Munurinn er það sem gerir hvert
og eitt okkar að einhverju sérstöku. Jafnvel tvíburar eru ekki nákvæmlega
eins. Innra með okkur erum við líka ólík. Hvernig lýsir þú sjálfri/sjálfum
þér? Hvaða einkenni hjá þér líkar þér vel við? Hvaða einkenni besta vinar
þíns/bestu vinkonu þinnar?
- Skoðanir okkar geta verið sterkar og mismunandi. Jafnvel í sömu
fjölskyldunni eru mismunandi skoðanir. Hvernig leysið þið úr ágreiningi ef
þið eru á öndverðum meiði innbyrðis í þinni fjölskyldu?
Verkefni:
- Að hverju beinast mestu áhyggjur nemenda í bekknum þínum? Stríðsátökum,
eiturlyfjum, ofbeldi, umhverfismálum, fordómum eða öðru? Leitaðu í RESPONSE
til að sjá hvernig börnin hafa svarað þriðju Kidlink-spurningunni. Af
þeirra svörum má ráða hvað veldur börnum áhyggjum annars staðar í heiminum.
Til dæmis: eiturlyf, umhverfismál, fordómar o.fl. (Þú getur valið sömu
löndin og þú valdir í síðasta verkefni.) Settu niðurstöðurnar upp í dálka.
Hvert er helsta áhyggjuefni barnanna í hverju landi sem valið er? Geturðu
útskýrt niðurstöðurnar? Biddu nemendurna sem þátt taka í verkefninu að
vinna þetta verkefni og senda niðurstöðurnar í tölvupósti á listann.
- Ef þú ímyndar þér að þú getir breytt því sem þú vilt breyta, hverju
mundirðu þá breyta? Semdu ritgerð þar sem þú úskýrir hvað það er sem veldur
þér áhyggjum varðandi fjölskyldu þína, skólann þinn og landið þitt nú og
hvernig þú vildir helst sjá þessi atriði í framtíðinni. Sendu ritgerðina á
listann svo að aðrir nemendur í verkefninu geti lesið um hugmyndir
þínar.
- Ímyndaðu þér landið þitt árið 2098. Semdu stutta sögu þar sem þú lýsir
einhverju í samfélaginu þínu árið 2098 eins og þú ímyndar þér það. Skreyttu
söguna með líflegum titli. Gerið vefsíðu þar sem þið birtið sögur allra í
bekknum. Bætið við myndum. Sendið slóð vefsíðunnar til annarra þátttakenda
í WAI-áætluninni.
- Semde lista yfir fræga einstaklinga sem hafa látið eitthvað af sér
leiða (gott eða illt) sem með einhverjum hefur breytt heiminum í þá veru
sem hann er nú. Veljið einstakling. Gerðu veggspjald um einstaklinginn þar
sem þú útskýrir: Hvað gerði þessi einstaklingur sem gerði hann/hana
fræga(n)? Hvers vegna telurðu að aðrir muni eftir þessum einstaklingi?
Bættu við myndum af og frásögnum um einstaklinginn og fleygum orðum eftir
hann. Gerið vefsíðu þar sem þið notið veggspjöldin sem þið gerðuð í
bekknum. Biðjið nemendur sem þátt taka í verkefninu að gera slíkt hið sama.
Gaumgæfið það fræga fólk sem þau völdu. Gerið lista yfir sérkenni sem finna
má hjá öllu fræga fólkinu sem var athugað.
- Gerðu vefsíðu með ljósmyndum af stöðum í landi þínu sem þér er í mun að
vernda. Skipuleggðu ljósmyndunarferð til nokkurra þessara staða með vinum
þínum. Bjóddu öðrum þátttakendum í verkefninu að líta að vefsíðu þína.
- Teiknaðu mynd sem lýsir framtíðarsýn þinni um betri heim. Sendu myndina
í tölvupósti til netfélaga þinna og biddu þá að gera eins fyrir þig.
Prentaðu og merktu myndirnar með nafni og landi hvers myndsmiðs. Hannið
risastórt veggspjald þar sem þið komið fyrir útprentunum af öllum myndum.
- Svaraðu spurniningunni “Hvernig vil ég að heimurinn verði betri þegar
ég verð eldri?". Bættu þessum svörum við svörin við spurningunum í hinum
tveim verkefnunum.
|