Kæru kennarar:

Velkomin í verkefnið "Hver er ég" sem er áfangi í Kidlink-verkefninu Hver er ég. Á þessari síðu er að finna lýsingu á áfanganum, svo og tímaáætlun og markmið.

KIDLINK kennarar sem einnig verða þér innan handar með framkvæmd verkefnisins í bekknum sömdu þennan áfanga. Við þykjumst þess fullviss að þessi verkefni verði þér og nemendum þínum ánægjuleg viðfangsefni.

"Hver er ég?"

Í fyrsta verkefninu byrja nemendur á að kynnast sjálfum sér betur og sínum högum. Þau læra meira um þeirra eigin forsögu með því að rannsaka merkingu nafna sinna og hefðir í því sambandi. Þeir kynna sig fyrir öðrum nemendum sem taka þátt í þessu verkefni og segja hvert öðru frá áhugaverðum sögum um merkingu og notkun nafna í þeirra eigin löndum. Þau læra hvernig nöfn dýra eru ólík í ýmsum löndum. Þau taka viðtöl við foreldra sína til þess að kynnast áhugaverðum sögum um nöfn sín og geta sagt hvert öðru frá þeim. Þau heyra hvert um annars eftirlætistónlist og dansa.

Í öðru verkefninu halda nemendur aðeins áfram og kynnast sjálfum sér og öðrum betur. Þau kynnast ýmsum möguleikum sem standa þeim til boða í framtíðinni í landi og samfélögum hvers og eins og þeirra. Þau læra um störf og tækifæri og hvað einstaklingur þarf að hafa til að bera til að geta leyst tiltekin störf af hendi. Þau segja hvert öðru frá eftirlætisstörfum sínum. Nemendur skipa nefnd til þess að velja bestu einstaklingana í tilteknar stöður. Þau velja nokkra nemendur til að taka viðtöl við aðra og öðlast reynslu í "atvinnuleit".

Í þriðja verkefninu móta nemendurnir hugmyndir sínar um betri heim. Þau horfa í kringum sig til að sjá hvað þeim líkar og mislikar varðandi ástandið í samfélagi þeirra. Þau reyna að komast að því hvað ógni umhverfinu. Þau segja hvert öðru frá hugmyndum sínum um stríð og frið. Þau spyrja hvert annað um drauma og áhyggjur. Þau læra um drauma og áhyggjur barna í öðrum samfélögum og öðrum löndum.

Í viku 7 og 8 hafa nemendurnir ákveðna reynslu af hnattrænu kennslustofunni. Í síðustu tveim vikunum skiptast nemendur á skoðunum um nauðsyn "hnattrænnar velferðar". Þau tryggja sér aðstoð hvers annars til að móta málamiðlunarhugmyndir. Í þessu verkefni er ætlast til að þau móti hugmyndir sínar um málamiðlun. Þau eiga að finna leiðir til að bæta heima og hefjast handa nú þegar.

Í lok hvers verkefnis svara nemendur þínir spurningunni sem spurt var í því verkefni. Að loknum 8 vikum senda nemendurnir svörin sín á RESPONSE.

Við höfum lagt margar spurningar og verkefni inn í hvert verkefni. Veldu úr þeim þau sem þú telur þig geta unnið með nemendum þínum. Einnig geturðu bætt við þínum eigin verkefnum.

Markmið áfanga:

Markmið þátttakenda:

  1. Að kynnast sjálfum sér og öðrum betur.
  2. Að vinna með og læra af öðrum nemendum á netinu.
  3. Að safna gögnum úr ýmsum áttum og breyta þeim í gagnlegar upplýsingar, greina þær og skiptast á nýrri þekkingu.
  4. Að skilja betur eigin menningu og menningu annarra landa.
  5. Að þróa gagnrýna hugsun.
  6. Að nota tölvu og nýta ýmsa möguleika hennar til að læra um hvað er líkt og hvað ólíkt í menningarlegu tilliti.
  7. Að lærea að leysa mál í hópvinnu.

Markmið:

Nemendur verði færir um:

  1. Nýta vefsíður til að miðla hugmyndum til annarra barna.
  2. Nýta tónlist og dans til að tjá tilfinningar sínar.
  3. Senda og taka á móti tölvupósti í samskiptum við aðra.
  4. Leita að og safna gögnum úr Kidlink gagnasöfnum.
  5. Þroska sköpunargetu þeirra og ímyndunarafl með því að tjá tilfinningar sínar í teikningum.
  6. Vinna í hópum með bekkjarfélögum og félögum á netinu.
  7. Tjá hugmyndir sínar í rituðu máli.

Að taka þátt í þessum áfanga

TÍMAMÖRK: September-október 1998

VIKUR

VIÐFANGSEFNI

Vika 1 og 2

Hver er ég? Ævintýri um nöfn.

Vika 3 og 4

Hvað hyggst ég fást við þegar ég verð eldri? Atvinna og störf

Vika 5 og 6

Hvernig vil ég að heimurinn verði betri staður? Nemendur skiptast á framtíðarsýnum um betri heim.

Vika 7 og 8

Hvað þarf ég að gera til að stuðla að því að bæta heiminn? Málamiðlun.


http://www.kidlink.org/ | Hver er ég? Valmynd |


Áfangi saminn af Esperanza Sepulveda - Höfundarréttur 1998 Kidlink Öll réttindi áskilin.