Vika 3 og 4

Ég vona að þú þekkir nú sjálfa(n) þig, bekkjarfélaga þína og netfélaga þína ögn betur. Reyndu að ímynda þér sjálfa(n) þig að 10 árum liðnum. Allir eiga sér hlutverk í lífi sínu. Hvert er þitt hlutverk? Veistu nú þegar hvað þig langar til að starfa við þegar þú verður orðin(n) fullorðin(n)? Næsta kennslustund er um starfsferil og atvinnu.

Það fer eftir persónuleika þínum, áhugamálum og óskum hvaða starfsferill er hinn eini rétti í þínum augum. Hvað þarftu að gera til að stuðla að því að þú náir markmiðum þínum og markmiðum hins hnattræna samfélags? Í hvaða átt langar þig að stefna? Þú ert aldrei of ung(ur) til að huga að framtíð þinni, jafnvel þótt þú skiptir um skoðun nokkrum sinnum frá því þú ert barn og þangað til þú verður fullorðin(n). Þú verður að taka gildismat, áhuga og persónulega þætti með í reikninginn til að geta tekið giftudrjúga ákvörðun.

Fólk er misstórt, mislit og hefur ólíkan smekk. Stundum heyrum við fólk koma með athugasemdir í stíl við “þetta er ekki neitt fyrir stelpu" eða “þetta er ekki neitt fyrir strák". Kyn manns ætti nú ekki að segja til um hvað menn geta gert. Stelpur eða strákar geta verið kennarar, stýrt flugvélum, smíðað brýr, bakað gómsætar kökur og sætabrauð, þrifið hús og staðið vel að því að ala upp börnin sín. Þau geta bæði verið læknar eða hjúkrunarfræðingar.

Það er dásamlegt að finna draum sinn og það veltur á þér hvort hann verður að veruleika. Gott getur verið að spjalla við einhvern ef þú ert enn í vandræðum með að taka ákvörðun. Sérhver ákvörðun er háð nokkrum óvissuþáttum. Ekki er veitt nein ábyrgð á lífinu. Sérhverri ákvörðun fylgir áhætta en með æfingu verður auðveldara að taka ákvörðun. Athugaðu náttúrulegar gáfur þínar og gerðu þér grein fyrir hvað þú gerir vel, áttaðu þig á hvaða viðfangsefni veita þér lífsfyllingu og ánægju og íhugaðu hvers konar lífi þig langar að lifa.

Aðeins þú getur ráðið hvaða draumur er sá rétti fyrir þig jafnvel þótt nauðsynlegt gæti reynst að vinna hörðum höndum að því að gera hann að veruleika!

Til umræðu

  1. Hver er uppáhaldsgreinin þín í skólanum, (fyrir utan frímútur!)? Ertu góð(ur) í stærðgræði, náttúrufræðum, tungumálum eða íþróttum? Gætirðu hugsað þér störf sem hefðu í för með sér mikla stærðfræði? Náttúrufræði? Með hvers konar starfi mundirðu mæla handa þeim sem væri góður í tungumálum og bókmenntum?
  2. Hvað með íþróttir? Nauðsynlegt er að vera afburðaíþróttamaður til að geta orðið atvinnumaður. Til að ná árangri þarf einnig að leggja hart að sér við æfingar. Á þetta við um önnur störf? Á þetta við um geimfara? Lækni?
  3. Sumir eru raunsæir (gerendurnir), hefðbundnir (skipuleggjendur), skynugir (hugsuðir), félagslegir (aðstoðarmenn), framtaksamir (áteljendur), listfengir (skaparar).
    Veistu hver þessara manngerða á við þinn persónuleika eða bekkjarfélaga þinna? Eru til fleiri manngerðir til viðbótar þeim sem voru nefndar?
    Geturðu nefnt frægt fólk sem flokka má sem raunsætt? Hefðbundið? Skynugt? Félagslegt? Framtaksamt? Listfengt?
  4. Víða verður fólk að fara um langan veg til að stunda skóla. Stundum er vont veður í marga daga eða jafnvel mánuði. Hvers konar áhrif gæti slíkt haft á menntamál í samfélagi? Hvað mætti gera til að bæta úr slíku ástandi?
  5. Börn hafa tilhneigingu til að herma eftir foreldrum. Ef foreldrar þeirra lásu mikið eru miklar líkur á því að börnin séu einnig lestrarhestar. Stundum sér maður heilar fjölskyldur sem eru bændur, heila fjölskyldu af heilbrigðisstarfsmönnum og fjölskyldu þar sem nærfellt hver einasti er bakari. Jafnvel hvað snertir starfsframa sem börn sækjast eftir reyna þau að líkjast foreldrum sínum. Hver er uppáhaldsatvinnan í fjölskyldu þinni? Eru fleiri en einn einstaklingur með sömu atvinnu? Þekkirðu aðrar fjölskyldur þar sem fleiri en einn stunda samskonar vinnu? Telurðu að foreldrar geti haft áhrif á það eftir hvaða starfi barn sækist? Hvernig? Heldurðu að foreldrar geti haft þau áhrif að barn sækist ekki eftir tilteknu starfi?
  6. Sumir vinna vel í hópum; aðrir vinna betur einir síns liðs. Hópstarfsmennirnir eru 'liðsmenn' sem vinna með öðrum þar til verkinu er lokið. Þeir láta hlutina ganga. Hinar öfgarnar eru hinn 'einsami úlfur'. Þessi einstaklingur vill heldur ljúka verkinu einn. Hann þróar lausnir með rökleiðslu og leitast við að ná markinu með lágmarksaðstoð frá öðrum. Hvor þessara manngerða nýtir sín í rannsóknarvinnu, greiningu eða endurskoðun? Finndu meðal vinanna 'einsaman úlf' og 'líðsmann'.

Verkefni

  1. Við skulum átta okkur á því hvaða störf þið í bekknum viljið helst! Ritið á blað heiti þriggja starfa sem eru freistandi. Setjið niðurstöðurnar upp í dálka svo sjá megi vinsælustu störin í bekknum ykkar. Þetta verður TAFLA A. Hvert er uppáhaldsstarfið meðal ykkar bekkjarfélaganna? Ef allir í ykkar héraði kysu einungis þessi störf - í hvaða störf mundi þá skorta fólk? Eru nemendur í bekknum ykkar sem mundu eiga í vandræðum með að fá atvinnu vegna þess að þessi störf eru svona vinsæl? Spyrðu netfélaga þína um vinsælustu störfum í bekkjunum þeirra. Sýndu þeim ykkar niðurstöður. Eru vinsældir starfa eitthvað svipaðar hjá netfélögunum? Reynið að útskýra niðurstöðurnar sem þið komist að.
  2. Þegar menn eru í raun á höttunum eftir starfi verður að keppa við aðra um sama starfið. Líkið eftir raunverulegum aðstæðum: Hver bekkur auglýsir laus störf á netinu í ímynduðu fyrirtæki sínu. Nauðsynlegt er að lýsa hvaða kröfum umsækjendur þurfa að fullnægja. Allir í bekknum og allir netfélagar geta sent umsóknir sínar þar sem þeir staðhæfa hvers vegna þeir séu bestu umsækjendurnir. Veljið einstakling til að tala við umsækjendur um hvert starf. Viðkomandi sker úr um hver umsækjenda er hæfastur til starfsins og mælir með honum eða henni.
  3. Bjóðið fólki í ýmsum störfum að koma í skólann og spjallið um störf þeirra á netinu. Sendið boð til annarra bekkja um þátttöku með ykkur í þessum áfanga. Hver bekkur undirbýr lista með spurningum sem þá langar til að leggja fyrir viðkomandi einstakling. Athugið að einhverju leyti hvað einstaklingurinn gerir.
  4. Skiptið ykkur í litla hópa. Hver hópur velur land á heimskortinu á veggnum. Leitið í RESPONSE söfnunum í því skyni að finna meira efni um upp á hvaða störf börn frá þessu tiltekna landi halda. Hvert er uppáhaldsstarfið í landinu? Setjið niðurstöðurnar upp í dálka í TÖFLU B.
  5. Ritið niðurstöður bekkjarfélaga ykkar og netfélaga ykkar upp í dálka í TÖFLU C. Nefnið störfin sem bæði stelpur og strákar völdu. Hvaða áhrif hefur menning, hefðir og búseta á það hvernig þið veljið störf?
  6. Hvaða manngerð má segja að efirfarandi einstaklingar hafi haft að geyma? Albert Einstein, Mother Theresa, Pablo Picasso, Amadeus Mozart, Mohandas Ghandi, Leo Tolstoy, Queen Elizabeth, Ernest Hemingway, Paul Gauguin, Michael Jordan, Andrea Agassi, Walt Disney, Bill Gates, Marie Curie. Gerið ykkar eigin lista og sendið hann öðrum bekkjum sem taka þátt í verkefninu á netinu. Bekkirnir verða að útskýra hvernig þeir telji að þeirra tilteknu frægðarpersónur náðu sinni frægð.

Tafla yfir störf (TAFLA A og TAFLA B)

Störf

Tíðni

kennari

2

 

TAFLA C

Land

Æskilegt starf


http://www.kidlink.org/ | Hver er ég? Valmynd |


Áfangi saminn af Esperanza Sepulveda - Höfundarréttur 1998 Kidlink Öll réttindi áskilin.