Vika 1 og 2

Velkomin í verkefnið “Hver er ég?" project! Í fyrstu fjöllum við um þig og hver þú ert, hvaða tónlist þér líkar að hlusta á, hvaða mat þér líkar að borða, uppáhaldsíþróttir og tómstundastörf, uppáhaldskvikmyndir og -bækur: Öll þessi atriði segja öðrum eitthvað um þig. En gerirðu þér grein fyrir hvað nafnið þitt er mikilvægt? Ef þú hefðir ekkert nafn hvernig gætirðu þá sagt hver þú værir? Hver mundir þú vera nafnlaus? Þegar þu segir til nafns vita aðrir hver þú ert.

Nöfnin okkar veita okkur einstakan kraft ævina á enda. Skírnarnöfn fólks getur orkað á hvernig við skynjum fólkið. Við tengjum viss sérkenni við tiltekin nöfn. Við mótum þessi tengsl vegna reynslu okkar af nöfnum frægra einstaklinga úr sögunni, bókmenntum, goðafræði og sjónvarpi, svo og úr þjóðtrúnni. Þess vegna eru tiltekin nöfn vinsælli í einu landi en í öðru. Erlend ættarnöfn segja oft til um störf forfeðra eða heimkynni og hafa einnig mismunandi merkingarblæ í ýmsum löndum. Í sumum löndum ber barn ættarnafn föður síns: Jensen, Sepúlveda, Smith eða Vega. Nafnasiður Íslendinga: Stefánsdóttir, Jónsson þekkist einnig annars staðar Vasilievna (dóttir föðursins Vasilij) og Tokmakov (börn Tokmak).

Spurningar til umræðu

  1. Kynntu bekkinn þinn eða hóp fyrir þeim sem taka þátt í verkefni okkar. Nefndu nafn skóla þíns eða hópsins, fjölda nemenda, nafn heimabæjar, þorps eða borgar og land.
  2. Hvert er vinsælasta nafnið í ættinni þinni? Hver heldurðu að ástæðan sé fyrir því? Hvert er vinsælasta strákanafnið í skólanum þínum? En vinsælasta stúlkunafnið? Og í landinu þínu? Ef þú gætir skipt um nafn hvaða nafn mundirðu þá velja?
  3. Sum gælunöfn eru styttingar á nöfnum og önnur gælunöfn eru tilbúin. Hefur þú gælunafn? Hvers vegna nota menn gælunöfn?
  4. Veistu hvað nafnið þitt merkir? Veistu merkingu nafnanna í fjölskyldu þinni?
  5. Ef barn hefur langt eða flókið nafn getur reynst erfiðara fyrir barnið að læra að skrifa nafnið sitt. Geturðu nefnt nokkur slík nöfn?
  6. Er mikilvægt að ávarpa einstakling með nafni viðkomandi og að bera það rétt fram? Hvernig líður þér þegar aðrir stafsetja ekki nafnið þitt rétt í tölvusamskiptum?
  7. Áttarðu þig á hvernig nafn einhvers getur sagt okkur eitthvað um uppruna, þjóðerni eða sögu hans?
  8. Mismunandi menning, ólík tungumál og trúarbrögð í mismunandi hlutum heimsins hafa valdið því að menn fylgja mismunandi nafnasiðum. Hvernig notið þið föðurnafn eða ættarnafn í þínu landi? Hafa allir í fjölskyldunni sama ættarnafn eða föðurnafn? Mamman, pabbinn og börnin?
  9. Áttu gæludýr? Hvað heitir dýrið? Hvað merkir nafnið? Hvers vegna valdirðu þetta nafn? Telur þú að mismunandi dýrategundum séu gefin mismunandi nöfn? Mismunandi nöfn fyrir hunda, ketti, fugla eða hesta?
  10. Semurðu þína eigin tónlist? Hver er uppáhaldstónlistin þín? Hvers vegna heldurðu meira upp á hana en annars konar tónlist? Er til sérstök danstónlist? Þekkirðu einhverja þjóðlega tónlist og dansa?
  11. Hver er uppáhaldspoppsöngvari þinn? Hvers vegna er hann eða hún í uppáhaldi hjá þér? Heldurðu að nafn hans eða hennar tengist eitthvað frægð þeirra?
  12. Hver er uppáhaldshljómsveitin þín? Veistu hvað nafn hennar merkir? Finnst þér nafnið vera vel valið? Hvers vegna? Ef þú værir framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar hvaða nafn mundir þú gefa henni? Why?

Verkefni

  1. Gerðu klippimynd í fullri líkamsstærð með nöfnum allra í bekknum þínum. Sendu mynd af því til vina þinna á netinu. Gerðu minni klippimynd með prentuðum myndum sem vinir þínir á netinu hafa sent. Spyrðu netvini þína um sérstök merki í nöfnum þeirra. Æfðu þig í að rita nöfnin þeirra.
  2. Leitaðu í nafnabók að því hvar nöfn vina þinna og ættingja merkja. Sendu lista með nöfnum nemenda í hópnum þínum og merkingu þeirra til netfélaga þinna. Biddu þá að gíska á hvor eru nöfn stráka og hvor nöfn stúlkna.
  3. Biddu einhvern eldri ættingja þinn að segja þér hver hafi verið mest notuðu nöfnin þegar hann eða hún var barn og gerðu lista yfir slík nöfn. Taktu listann með þér í skóla og berðu hann saman við vinsælustu nöfnin nú. Er einhver munur?
  4. Búðu til skammstöfun fyrir nafn þitt. Teiknaðu mynd með. Gerðu vefsíðu með skammstöfunum allra í hópnum þínum og bjóddu öllum netvinum þínum að heimsækja vefsíðuna.
  5. Skiptið bekknum í 7 litla hópa. Hver hópur velur sér sitt meginland. Finnið meginlöndin sjö á stóru heimskorti. Hverjum nemanda í hverjum hópi er fengið sitt landakort. Veldu eitthvert land á þínu svæði og tengstu síðunniKidlink lönd. Gáðu hvort einhver er skráður í Kidlink frá þessu landi. Ef svo er merktu þá staðinn með bláu letri K. Ef ekki er neitt barn frá þessu landi í skráð í Kidlink reyndu þá að útskýra fyrir hópnum þínum hver ástæðan geti verið fyrir því.
  6. Tengstu RESPONSE Searcher og leitaðu að landinu sem þú valdir í síðasta verkefni. Leitaðu í bréfum nemenda frá þessu landi til að finna nöfnin þeirra og búa til lista. Nota þeir ættarnöfn? Eru þau ólík nöfnunum í landi þínu? Geturðu greint af nafninu hvort um er að ræða strák eða stúlku? Hvert er vinsælasta stúlkunafnið? Hvert er vinsælasta strákanafnið? Gáðu hvort þau eiga einhver gæludýr. Hvers konar gæludýr eiga þau? Gáðu hvort nemendurnir nefna nöfn gæludýra sinna. Gáðu að uppáhaldssöngvara þeirra, hljómsveit tónlistartegund og skráðu það hjá þér. Gerðu töflu yfir upplýsingarnar sem þú hefur: nafn nemandans, kyn, hvers konar gæludýr og nafn þess, tónlistartegund, nafn uppáhaldssöngvara o.fl. Berðu saman það sem þú hefur fundið við það sem aðrir hópar í bekknum og á netfélagar þínir hafa komist að .
  7. Spyrðu foreldra þína hvernig nafn þitt var valið. Hver valdi nafnið og hvers vegna? Hvað merkir nafnið þitt og hvernig var það ákveðið? Bera einhverjir ættingjar þínir nafn þitt? Hver er saga nafns þíns? Hvaða tákn hefur nafn þitt? Er til einhver áhugaverð saga um nafn þitt? Hvaða tilfinningar bera foreldrar þínir til nafns þíns? Bættu ljósmynd af þér við viðtalið ef þú vilt og sýndu það félögum þínum í bekknum og í tölvupósti félögum þínum í öðrum bekkjum sem taka þátt í verkefninu.
  8. Taktu hljóðfæri þitt með í skóla ef hægt er og spilaðu uppáhaldslagið þitt. Ef þú kannt ekki á hljóðfæri geturðu í staðinn tekið með þér upptöku af uppáhaldslaginu þínu. Hvað segir þessi tónlist þér? Ef þetta er sönglag hvað merkir þá söngurinn? Hvers vegna er lagið sérstakt í þínum huga? Spyrðu netvini þína um uppáhaldslög og -tónlist.
  9. Þekkirðu einhverja þjóðdansa? Þarf að vera í sérstökum búningum fyrir þessa dansa? Kynntu dansana fyrir hópnum þínum og taktu myndir af búningum og dönsum. Gerðu upptökur af tónlistinni. Búðu til vefsíðu með myndum af búningum og dönsum. Leggðu inn hljóskrár með tónlist. Þú getur lýst dönsunum með teikningum eða jafnvel sett litlakvikmynd af dansinum á síðuna svo allir geti séð hann. Kynntu öllum þátttakendum í verkefninu síðuna. Spyrðu vini þína um dansa þeirra og búninga.
  10. Ritaðu svarið við spurningunni “Hver er ég?". Segðu frá því hvað þér líkar og hvað þér mislikar og hvað það er sem gerir þig að þeim einstaklingi sem þú ert. Vistaðu svarið á diskling þar sem þú getur líka vistað svör þín við næstu þrem Kidlink spurningum.


http://www.kidlink.org/ | Hver er ég? Menu |


Áfangi saminn af Esperanza Sepulveda - Höfundarréttur 1998 Kidlink Öll réttindi áskilin.