Kidlink  Krakka-gallery 
Leiðbeiningar
 

Myndlist

Myndir í Kidlink þurfa að koma á annaðhvort GIF formi eða JPG formi. Ástæðan er fyrst og fremst sú að þá taka þær minna pláss á netinu og auðveldara að skoða þær á vefnum. Allir krakkar sem svarað hafa Kidlink spurningunum fjórum, og eru ekki orðin 16 ára  geta sent inn myndir. Krakkar sem eru í 10. bekk grunnskóla geta verið með í verkefninu þar til Kidlink hátíðin er í byrjun maí hvert ár.

Markmið Kidlink er að gera krökkum að 16 ára aldri kleift að skiptast á skoðunum og vinna saman. Mest af samskiptunum fara fram í rituðu máli en einnig er hægt að tjá sig í myndlist. Kidlink krakka-gallery er sýning þeirra og tengist Kidart sem er alþjóðasvæði myndlistar hjá Kidlink.

Senda má myndir sem eru skannaðar, teiknaðar í tölvu, gerðar með texta (ASCII) eða á öðru formi sem krakkar kjósa. Þó innan þeirra marka sem stærð leyfir. Ef hægt er þá ættu börnin að merkja myndir sínar, neðst í hægra eða vinstra horni myndarinnar. Mikilvægt er að hafa myndina ekki of stóra. Þegar mynd er sett á vef er leiðinlegt ef ekki er hægt að sjá myndina á einni skjámynd. Mynd sem er af stærðinni 480 x 360 punktar, 16,9 x 12,7 cm koma fallega fram í Netscape og Internet Explorer á venjulegum 640 x 480 punkta skjá.

Mikilvægt er að sá sem sendir inn myndina klári að vinna hana. Þannig má tryggja að hún líti eins út og ósk listamannsins er. Það eru nokkrir þættir sem þarf að hafa í huga þegar valið er snið (format) skrárinnar:
 

Við höfum ekki ótakmarkað geymslupláss á móðurtölvunni. Ef þú ert með stóran bekk sem er að gera myndir, veldu þá bestu myndirnar og sendu þær inn.



Skilaðu þessu með myndunum

Um listamanninn:

Nafn:
Aldur:
Skóli:
Staður:
Land:
Hvenær spurningunum 4 var svarað (u.þ.b.):
Netfang listamannsins:

Um myndina:

Titill:
Dagsetning sem myndin var búin til:
Vélbúnaður sem var notaður:
Hugbúnaður sem var notaður:
Þema eða athugasemdir listamannsins:
 (t.d. tenging við annað Kidlink verkefni)

Um bekkinn (ef myndlistin er gerð í skóla):

Nafn kennara:
Í hvaða kennslugrein var myndin gerð:
Fyrirmæli til nemenda:
Netfang kennara:


Upplýsingar um hvert á að senda myndir og koma þeim fyrir fást hjá Láru Stefánsdóttur, lara@ismennt.is
 
 

* Fara á heimasíðu  KIDLINK á íslensku 

Umsjón Lára Stefánsdóttir lara@ismennt.is
Uppfært 05. febrúar 1998