Hvernig á að gerast áskrifandi að Kidlink ráðstefnunum?

Kidlink ráðstefnurnar eiga sér stað með tölvupósti þar sem notuð er tækni er nefnist póstlisti (líka kallað umræðulisti). Póstlisti er einfaldlega listi með nöfnum og netföngum allra þátttakenda og er notaður í þeim tilgangi að dreifa bréfum til þeirra sem eru áskrifendur að ráðstefnunni.
Það eru ráðstefnur bæði fyrir börn og unglinga, sem og fullorðna. Á móti hverri ráðstefnu fyrir krakkana er samskonar ráðstefna fyrir fullorðna sem eru að vinna með krökkunum á viðkomandi ráðstefnu. Ef þú ert kennari með nemendur sem eru að taka þátt í einhverri af ráðstefnunum fyrir þá, er ætlast til að þú takir þátt í samsvarandi ráðstefnu fyrir fullorðna.
Allir póstlistarnir hafa sérstakt nafn sem er það sama og nafnið á ráðstefnunni. Dæmi: Kidforum-Coord, and Kidcafe-Individual.
Við notum hugbúnað sem er kallaður Listserv til að halda utan um alla póstlistana okkar.

Svona gerist þú þátttakandi að ráðstefnu!

Það eru tvær leiðir:

  1. Einfaldasta leiðin er að nota vefinn. Sjá að neðan.
  2. Skrá þátttöku með því að nota tölvupóst. Smellið hér, ef það er það sem þú vilt.

Auðvelda leiðin ...

Veldu flokk, og svo nafnið á ráðstefnunni sem þú vilt gerast þátttakandi í:

Kidcafe listarnir

Kidleader-

Kidproj-

Kidforum-

Gagnvirkni

Fréttir

Aðrir

Hvað svo?

Listserv (póstlistaþjónustan) mun nú senda þér sjálfvirkt bréf þar sem þú ert beðin/nn um að staðfesta beiðni þína um þátttöku. Það er gert til að koma í veg fyrir að hægt sé að skrá þig sem þátttakanda í ráðstefnu af þriðja aðila, án þinnar vitundar.
Svaraðu einfaldlega bréfinu sem Listserv sendir þér, með því að ýta á reply í póstforritinu og skrifa bara OK í bréfið. Ekki breyta fyrirsögn bréfsins (subject línunni).

Dæmi:

To: listserv@listserv.nodak.edu
Subject: Re: Command confirmation request (23E5CC)
Text field: OK

Fljótlega mun Listserv samþykkja staðfestingu þína, og byrja að senda þér bréfin sem berast inn á viðkomandi póstlista.

Að taka þátt í umræðunum

Ef þig langar að senda bréf til þeirra sem eru áskrifendur að listanum, sendu það þá til nafn á ráðstefnu@listserv.nodak.edu. Dæmi:

kidleader-islenska@listserv.nodak.edu
Kidproj-islenska@listserv.nodak.edu

Reglur um þáttöku

Hver ráðstefna hefur sérstakt markmið. Ætlast er til að umræðurnar tilheyri þeim markmiðum.
Markmiðunum er yfirleitt lýst í fyrsta bréfi sem nýir þáttakendur á hverjum póstlista um sig fá sent, einnig er þeim lýst á vefsíðu póstlistans. Ef þannig upplýsingar vantar,skoðaðu þá yfirlitssíðu Kidlink .
Til að fá meira að vita varðandi reglur um þátttöku, skoðaðu stefnuyfirlýsingu Kidlink

Gagnlegar leiðbeiningar

Smelltu hér, til að fá uppýsingar um hvernig eigi að hætta þátttöku á ráðstefnu.
Að vinna með aukið magn upplýsingaflæðis er erfitt, en það er til leið til að minnka umfangið, og jafnvel stöðva sendingu pósts tímabundið þegar þú t.d. ferð í frí. Þessi síða gefur einnig fleiri góð ráð.....

Gangi þér vel!

--------------------------------------------------
Leita: (?)

Styrktaraðilar | Viðurkenningar | Viltu aðstoða?
Byrjunarsíða
Umsjón vefsíðu Odd de Presno. - Uppfært 10.október, 2000.
Myndir úr Tölvu-listasafni Kidlink
Einkaréttur ® 2000 Kidlink . Allur réttur áskilinn.
Kidlink