Í stuttu máli, virkar
Kidlink svona: unglingur, barn eða skólabekkur svara
spurningunum fjórum, og senda inn svörin. Þau fá sjálfvirkt bréf til baka þar sem beiðni um þátttöku er staðfest.
Um leið og börn eða unglingar eru búin að skrá sig til þátttöku, er þeim heimilt að að taka þátt í því sem
Kidlink býður upp á, hvort sem það er að skiptast á skoðunum, menntandi verkefni eða önnur virkni sem í boði er.
Póstlistar
Kidlink (Listserv) er helsta samskiptaleiðin. Þátttakendum er ráðlagt að skrá þátttöku á hverjum lista fyrir sig. Í hvert skipti sem einhver sendir bréf á listann, fá allir sem eru á listanum bréfið. Einnig fer það í gagnasafn listans, svo það er engin ástæða til að geyma öll bréf sem berast.
Hér er örstutt yfirlit yfir hina ýmsu mismunandi lista:
Listar fyrir börn og unglinga
Kidlink spurningarnar fjórar
Response póstlistinn er eingöngu notaður til að taka á móti svörum við spurningunum fjórum. Þar fara engar samræður fram.
Kidcafe
Hinir mörgu Kidcafe listar Kidlink eru eingöngu notaðir fyrir tölvupóst-samskipti milli barna og ungmenna. Fullorðnir mega ekki taka þátt í umræðunum.
Kidproj
Kidproj listarnir styðja við styttri og lengri verkefni á milli málasvæða.
Kidforum
Kidforum listarnir eru fyrir skoðananskipti innan verkefna sem standa yfir í u.þ.b. tvo mánuði í einu.Í Kidforum er bara eitt verkefni í gangi í einu.
KHouse
Póstlisti á portúgölsku fyrir krakka sem taka þátt í K-húsunum í
Kidlink.
Menntandi verkefni
Fjölmargir póstlistar fyrir þátttakendur í
Hver-er-ég? verkefninu.
Stjórnenda-listar
Kidleader
Kidleader listarnir eru ætlaðir fyrir óformlegar samræður og skoðanaskipti um ýmis
Kidlink-málefni milli kennara og annarra fullorðinna stjórnenda
Kidlink krakkanna. Það má líka nota þá til samskipta stjórnenda hinna ýmsu verkefnum.
Verkefnisstjóra-listarnir
Verkefnisstjóra-listunum var komið á fót til að aoðvelda kennurum og öðrum fullorðnum sem stjórna samskiptum barna og unglinga á hinum ýmsu svæðum Kidlink, að hafa samskipti.
Að lokum er svo fjölskyldulisti á portúgölsku fyrir foreldra sem eiga börn sem eru að taka þátt í
Kidlink.
Allsherjar upplýsingaþjónusta
Kidlink tilkynningalistarnir færa okkur reglulega tilkynningar um það sem er að gerast í Kidlink.
Aðrir listar
Aðrir póstlistar
Kidlink eru vettvangur til að ræða gagngerar starfsbreytingar innan Kidlink, þjónustu til að birta fréttabréf, og fjölda af listum sem notaðir eru til að styðja við
Hver-er-ég? verkefnið.
Einkalistar
Að auki notar
Kidlink fjölmarga lokaða póstlista til að auðvelda stjórnun á öllu verkefninu í heild.
Önnur þjónusta
Í viðbót við póstlistana, býður
Kidlink líka upp á
Hafðu samband við notendahjálp
Kidlink ef þú þarfnast aðstoðar.
|