Það eru tvær leiðir til að hætta þátttöku (signoff from) á ráðstefnu!
-
Auðveldasta leiðin er að nota vefsíðu. Sjá að neðan.
-
Smelltu hér, ef þú vilt hætta þátttöku með tölvupósti.
|
Auðvelda leiðin ...
Veldu flokk, og svo nafnið á ráðstefnunni sem þú vilt hætta áskrift að, smelltu á hnappinn "
"Smelltu hér til að hætta þátttöku." Þegar þú færð upp síðuna sem á stendur join
or leave, smelltu þá á "Leave
the list."
Staðfesting
Í hvert skipti sem þú hættir þátttöku á einhverjum
Kidlink póstlista, muntu fá bréf sem staðfestir að þú hafir verið fjarlægð/ur af listanum eins og beðið var um.
Ef þú færð ekki þannig staðfestingu, eru möguleikar á að eitthvað hafi farið úrskeiðis!
Stundum gerist það, að beiðni um að hætta þátttöku endar í bréfi sem segir að það sé ekki búið að strika þig út af listanum. Það sem er pirrandi við það er, að þú heldur áfram að fá bréf frá póstlistanum.
Ástæðan gæti verið annað af eftirfarandi:
-
Póstþjónustan sem þú notar hefur skipt um netfang. Þó svo að póstur sem berst á gamla netfangið sé sendur til þín, þá getur þú ekki sent frá gamla netfanginu sem þú notaðir þegar þú skráðir þátttöku.
-
Netfangið þitt hefur breyst á einhvern annan hátt, og
Listserv póstþjónustan þekkir ekki póstinn frá þér. Þjónustan leyfir þér ekki að fjarlægja þig af listanum ef netfangið þitt er annað en það sem það var þegar þú sóttir um þátttöku.
Í báðum tilfellum, ættir þú að hafa samband við Listserv Services Manager
Kidlink á þessu netfangi:
listmgr@kidlink.org og útskýra ástandið á ensku, portúgölsku, eða spænsku. Vinsamlegast skrifaðu honum ekki, nema þú hafir reynt að hætta þátttöku samkvæmt leiðbeiningunum hér að ofan.
Styrktaraðilar |
Viðurkenningar |
Viltu aðstoða?
Byrjunarsíða
Umsjón vefsíðu
Odd de Presno. - Uppfært
10. október, 2000.
Myndir úr
Tölvu-listasafni Kidlink
Einkaréttur
® 2000 Kidlink . Allur réttur áskilinn.
|