Ráðstefnukerfi Kidlink samskiptaverkefnisins
Fyrir börn og unglinga

Til að skrá þátttöku, eða bara til að skoða, smelltu á nöfn listanna og svæðanna hér að neðan:

Kidcafe póstlistarnir

Fyrir opin samskipti og samræður, bæði milli einstaklinga (pennavinir) og hópa. Einnig til að spyrjast fyrir um málefni sem kynnt eru af krökkunum sjálfum. Fjöldi póstlistanna og reglur um þátttöku eru mismunandi eftir málasvæðum.

Kidproj póstlistarnir

Þeir styðja við fjölbreytt úrval af verkefnum sem ná yfir lengri og skemmri tíma.Verkefnin eru bæði innan málasvæðanna og á milli þeirra. Sum verkefni geta orðið það stór að þeim sé úthlutað sérstöku svæði fyrir umræðuna.

Kidforum listarnir

Þessir listar eru fyrir umræður um verkefni sem standa yfir í u.þ.b. tvo mánuði og þar er bara eitt verkefni í gangi í einu. Fullorðni stjórnandinn í hverju verkefni vinnur náið með nemendunum sem taka þátt og kennurum þeirra. Þessi póstlisti er ekki til á íslensku.

Rauntíma samskipti

Á einka-spjallrás Kidlink (IRK) geta krakkar um allan heim skrifast á og fengið svar til baka á sömu sekúndu. Sérstakir spjallfundir eru stundum skipulagðir til að styðja við hin ýmsu verkefni sem eru í gangi á póstlistunum.
Kidlink's MUSH world er sýndarheimur sem börn hafa skapað og endurspeglar raunverulegan heim.  Hér geta krakkarnir "endurskapað" heimaland sitt og borgir til að deila reynslu sinni og einnig geta þeir "spjallað" smana í rauntíma. Alls konar samvinnuverkefni eru sett á laggirnar til að auðvelda krökkunum samskiptin.

Listaverka-skipti

Krakkarnir geta sent listaverk sín í Tölvu-listasafn Kidlink.

Sérstök verkefni

Sérstakir póstlistar fyrir krakka sem taka þátt í verkefninu Hver-er-ég?.
KHOUSE-PORTUGUESE póstlistinn - fyrir samskipti krakkanna í K-húsunum.

--------------------------------------------------

--------------------------------------------------

Leita: (?)

Styrktaraðilar Kidlink | Krækja í viðurkenningasíðu Kidlink | Viltu aðstoða?
Byrjunarsíða
Umsjón vefsíðu Odd de Presno. - Uppfært 10.október 2000.
Myndir úr
Tölvu-listasafni Kidlink
Einkaréttur ® 2000 Kidlink . Allur réttur áskilinn.