![]() Eygló, Lói, Lára, Jóna, Kolla og Hilda. |
Kidlink-vinnufundur 24. - 26. júní 1999Hinn árlegi vinnufundur Kidlink á íslensku var haldinn í Menntaskólanum á Akureyri helgina 24. til 26. júní. Á fundinum var veturinn gerður upp og vegurinn varðaður fram á við. Er það hald manna að mikið hafi áunnist á íslenska málasvæðinu og virknin í vetur hafi verið mjög ásættanleg. Með nýjum samskiptaverkefnum á íslensku og bættu skipulagi erum við viss um að næsta skólaár fjölgi íslenskum Kidlink-nemendum til muna. |
![]() |
Kidlink-skólaárið 1998 til 1999 Þetta skólaár var það fyrsta sem Kidlink var formlega starfandi á íslensku. Þátttaka varð mun meiri en okkur hafði órað fyrir. Ný íslensk verkefni sáu dagsins ljós (sjá hér neðar) og var mikil ánægja meðal kennara og nemenda að geta unnið samskiptaverkefni á íslensku. |
![]() |
6. 7. og 8. maí síðastliðinn tóku þrír íslenskir skólar þátt í hinni árlegu Kidlink-hátíð ásamt fjölmörgum skólum víða um heiminn.. Þeir skólar sem tóku þátt voru Borgarhólsskóli á Húsavík (Vala Stefánsdóttir), Grunnskólinn í Borgarnesi (Lói - Þór Jóhannsson) og Breiðholtsskóli (Kolbrún Hjaltadóttir). Hátíðin fer þannig fram að nemendur hafa samskipti ýmist með bréfasamskiptum (e-mail) en mun algengara er að spjallrásirnar (Irc) séu notaðar. Greinagerðir um þessa reynslu er að finna hér. |
****************** Eldri fréttir
*****************
|
Í samráði við samvinnuhóp um H.C Andersen í skólum var þetta verkefni samið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur. Verkefnið gefur öllum þeim, sem fjalla vilja um ævintýri þessa þekkta danska skálds, tækifæri á að vera með. Verkefnið stendur frá 2. mars til loka apríl |
|
4. janúar 1999 hófst annað íslenskt verkefni á íslenska málsvæðinu. Þetta verkefni stendur til loka maí og fjallar eins og nafnið gefur til kynna um þjóðtrú og þjóðsögur okkar Íslendinga. Verkefnið var samið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur., sem jafnframt stýra verkefninu. |
|
Fyrsta íslenska Kidlink-verkefninu hleypt af stokkunum 10. september 1998 hófst verkefnið Hvalir og menn, sem er fyrsta alíslenska Kidlink-verkefnið. Kveikjan að þessu verkefni var koma háhyrningsins Keiko til Íslands frá Ameríku. Verkefnið stendur til 1. maí. |
Copyright (c) 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn.