Kidforum kynnir

My Fellows

| Yfirlit yfir verkefnið |
| Leiðarvísir |
| Tímaáætlun |
| Teymi |

Yfirlit yfir verkefnið
Inngangur
Menningu hverrar þjóðar - sem endurspeglar sérstöðu hennar og gerir hana ólíka öðrum þjóðum - er hægt að kynna með þeim einstaklingum sem höfðu áhrif á þjóðarvitundina og lögðu sitt af mörkum við að skapa sögu þjóðanna og í mörgum tilfellum að gera heiminn betri.
Líf þessara einstaklinga, sem settu svip sinn á örlög og menningu þjóða sinna, er nú minnst af hugmyndum þeirra, hugsjónum og afrekum. Verkefninu - My fellows - er ætlað að kynna þá í svokallaðri sýndar-bók (virtual book) þar sem kafli verður frá hverri þjóð sem tekur þátt. Þáttakendur í þessu KidForum verkefni eru höfundar bókarinnar.
Uppúrstandandi einstaklingar hverrar þjóðar, hafa með lífi sínu orðið fyrirmyndir. Þessar fyrirmyndir hafa átt sinn þátt í því hvernig nemendur hafa svarað "hvernig vil ég að heimurinn verði þegar ég verð stór?" sem er ein Kidlink spurninganna fjögurra. Þessar persónur sem verða kynntar í sýndar-bókinni. Verkefnið "My fellows" verður mikilvægur þáttur Kidlink samskiptanna næsta ár.
Bækurnar munu hver fyrir sig undirstrika mismunandi sjónarmið ólíkra menningarheima. Saman munu bækurnar einnig sýna hversu líkt fólk er þrátt fyrir fjölbreytileikann.
Verkefnið "My fellows" byggir á þessum hugmyndum, fjölbreyttri menningarlegri reynslu sem skapar tækifæri til að skilja og viðurkenna menningarlegan mismun þjóða og þjóðfélagshópa. Að auki mun verkefnið gera nemendum um allan heim kleift að skiptast á þekkingu og skilningi og öðlast reynslu með samskiptum milli landa.
Markmið
Markmið "My fellows" verkefnisins er að skapa reynslu af mismunandi menningu með hjálp sýndar-bókanna. Verkefnið er unnið innan Kidlink og samanstendur af myndum og lýsingum á framúrskarandi einstaklingum á mörgum sviðum sem hafa skipt sköpum fyrir menningu og þróun þjóðarinnar.

Framgangur verkefnisins
"My fellows" er skipulagt sem hópvinnuverkefni þar sem nemendur byrja á að rifja upp um hvað þeir voru að hugsa þegar þeir svöruðu þriðju Kidlink-spurningunni "hvernig vil ég að heimurinn verði þegar ég verð stór?" (gjarnan með kennara). Stefnt er að því að í hverju landi sé aðstoðarmaður þannig að nemendur geta tekið þátt á móðurmáli sínu.
Nethópur Kidlink mun koma öllu efninu á vefsíður í bókarformi. Síðan munu þýðendur Kidlink aðstoða við að þýða bækurnar á öll þátttökumálin.
"My fellows" verkefnið verður í eftirfarandi hlutum:
Í stuttu máli inniheldur sýndar-bókin "My fellows":

Framkvæmd
Áfangar í framkvæmd "My fellows" verða eftirfarandi:
My fellows - Ástralir - sýnishorn af nemendavinnu

Websolution: Neide Santos - Kidlink-Brazil
'My Fellows' was created and developed by Vera Salvador
June 1998. Copyright (c) 1997 Kidlink. All rights reserved.