JOHN FLYNN

 

Einn margra Ástrala sem hafa stuðlað að betri heimi er John Flynn. Hann fæddist í Viktoría árið 1880 og dó 1951. Fjölskylda hans var ekki efnuð og hann gat ekki farið í framhaldsnám. Hann fékk áhuga á trúmálum og var vígður sem prestur í öldungakirkjunni árið 1911. Næstu árin vann hann í norðurhéruðunum þar sem hann skipulagði fyrstu læknisþjónustuna þar sem flugvélar og útvarp var notað. Á þessum árum varð Huson Fysh, sem síðar stofnaði flugfélagið sem í dag er þekkt sem QANTAS, vinur hans. Það varð til mikillar hjálpar
Fótknúið útvarp var hannað og gerði það fólki á afskekktum svæðum í fyrsta sinn mögulegt að hafa samskipti með fjarskiptum. Flynn var ekki tæknifróður, en hann var mjög áhugasamur. Fyrsta flug Konunglegu fluglæknaþjónustunnar var frá Cloncurry í maí 1928. Flynn leysti mörg vandamál sem upp komu á næstu árum og fékk öldungakirkjuna til að afhenda fluglæknaþjónustuna til landssamtaka en það efldi og styrkti starfsemina.

Nú eru 14 höfuðstöðvar sem ná yfir tvo þriðju Ástralíu. 33 flugvélar fljúga yfir 5 milljónir mílna á ári hverju og veita læknisþjónustu meira en 100 000 sjúklingum. 9 000 þeirra eru fluttir á sjúkrahús. Reglubundnar ferðir eru farnar á afskekkta staði. Litlum sjúkrahúsum þar sem engir læknar starfa er stjórnað af fluglæknunum. Fólk ferðast meira en 50 mílur til að komast á heilsugæslustöð, en læknirinn getur verið í 300 mílna fjarlægð. Enn er útvarpið mikið notað (nú er það ekki lengur fótknúið) og ráð eru gefin við minniháttar sjúkleika sem ekki krefjast læknisheimsóknar. Í hundruðum búgarða, lögreglustöðva, kirkna og vita, svo dæmi séu tekin, eru lækniskistur fluglæknanna staðsettar. Ég held að hægt sé að segja að John Flynn skipti sköpum og bætti heiminn með lífi sínu.