a Kidlink Project
Doug Clarke, Marikk Henriksson, & Lynne Sueoka, Moderators

webpage by Lynne Sueoka
volcano gif courtesy of USGS/Cascades Volcano Observatory

The Volcano Project
Call for Participation--Icelandic Translation

Date: Sun, 22 Feb 1998 06:08:25 -1000
From: Lara Stefansdottir
To: doug_clarke@sbe.scarborough.on.ca, marik.henriksson@malmo.mail.telia.com, lynnes@kalama.doe.hawaii.edu
Subject: Icelandic translation of volcano project

Dear friends,

here is an Icelandic translation of the description of your project. I hope it will help to get Icelandic participants. I have posted this on kidleader-islenska list for adults in the Icelandic language area:

Tilkynning um verkefni: Eldfjöll - heimur í mótun
http://www.kidlink.org/KIDPROJ/Volcano
Stjórnendur:

Doug Clarke (Kanada) Doug_Clarke@sbe.scarborough.on.ca
Marikk Henricksson (Svíþjóð) marik.henriksson@malmo.mail.telia.com
Lynne Sueoka (BNA) lynnes@kalama.doe.hawaii.edu

Komið og kannið með okkur þetta stórkostlega náttúruundur. Deilið þjóðsögum sem tengjast hrauni og áhrifum þess á umhverfið þegar eldgosum fylgja gas, steinar og annað sem hefur áhrif á umhverfið.

Við berum saman eldfjöll og eldfjallasögur Ì heiminum. Við leitumst við að finna reglur í því hvar þau eru og áhrif á umhverfið, fólk og menningu í tengslum við þessi eldfimu undur.

Viðfangsefni:

  1. Ættleiðing á eldfjalli: Veldu eldfjall sem þú vilt læra um og segðu hinum frá því. Lærðu að þekkja þitt eldfjall og eins og öll stolt foreldri, vertu sérfræðingur í því!
    • Lýstu eldfjallinu þínu (staðsetningu -- lengdargráðu og breiddargráðu, tegund og eldgosum)
    • Segðu okkur sögur/mennungu/þjóðsögur í tengslum við eldfjallið þitt.
    • Hvernig hefur eldfjallið þitt haft áhrif á umhverfið?
    • Segðu frá áhugaverðum atburðum sem eru tengdir eldfjallinu
  2. Eldfjallagetraun:
    • Búðu til eina "eldfjallaspurningu" um eldfjallið þitt sem við getum sett á vef verkefnisins.
    • Vertu viss um að spurningin þín sé byggð á upplýsingum sem þú fékkst annað hvort á póstistanum eða hjá skólum sem taka þátt í verkefninu.
    • Gefðu vísbendingu (eða vísbendingar) hvar hægt er að finna svörin
  3. Þegar allir þátttakendur hafa sagt frá eldfjöllunum sínum líttu á gögnin sem þú hefur safnað og reyndu að finna alhæfingar sem þú getur sent inn á póstlistann líka.
    • Hvað hafa þessi eldfjöll sameiginlegt?
    • Hvernig eru þau ólík?
    • Hvað heldur þú að valdi mismuninum?
  4. Eldfjöll í geimnum: Hvað gera elfjöllin á tunglsum Júpíters? Io og Europa segja okkur frá skorpunni og því sem er inn í tunglunum. Hvernig getur könnun á jarðfræði okkar eigin plánetu hjálpað okkur að skilja sólkerfin betur?
  5. Hvaða önnur verkefni og upplýsingar getur þú lagt til sem gaman væri að deila með öðrum þátttakendum? (T.d. Hawaii gætu krakkarnir haft viðtal við fólk sem hefur upplifað önnur eldgos).
  6. Fleiri spurningar og viðfangsefni er hægt að finna á vefsíðum Kidproj verkefnisins.

TÌmi:

Mars
----
Skráning í verkefnið: Veldu eldfjall sem þú ættleiðir og sendu bréf til Kidproj um það. Rannsakaðu ættleidda eldfjallið þitt og sendu upplýsingar á póstlistann. Sendið spurninguna ykkar og svarið vð henni beint til stjórnenda verkefnisins.

Apríl
-----
Byrjið að safna og greina efni frá öðrum þátttakendum.
Svarið spurningunum úr spurningakeppninni!
Sendið allar myndir og teikningar til stjórnenda verkefnisins með upplýsingunum sem þú hefur safnað, eða settu það sjálf(ur) á vefsíðurnar þínar.

Maí
---
Sendið nöfn þeirra sem gengur vel í spurningakeppninni Metið verkefnið og hvernig ykkur fannst það og póstið á póstlistann. Lárið vefsíður fyrir verkefnið.

Spurningar til umhugsunar

  1. Eldfjallasögur: Hvað er líkt með sögum frá mismunandi löndum? Hvað er mismuanndi? Hvað segir þetta um viðbrögð fólks við þessu náttúrufyrirbæri?
  2. Áhrif eldfjalla: Hvaða áhrif hefur eldvirkni á fólk á þeim stöðum sem upplifir hana? Hvað segir það um tengsl manns og umhverfis?
  3. Landavræði/jarðfræði: Ef þú merktir öll eldfjöllin sem sagt er frá í þessu verkefni á heimskortið, hvaða mynstur finnur þú þá? Eru einhverjar skýringar á þessum mynstrum?

Kær kveðja
Lára

Lara Stefansdottir, lara@ismennt.is, http://rvik.ismennt.is/~lara
Box 472, 602 Akureyri, Iceland Tel: 354-460-1483, 354-896-3357
Eything Educational District Office, Glerargata 26, 600 Akureyri
Kidlink - Assistant Project Director, http://www.kidlink.org