Kidlink English  Help | Contact Us | Contents | KidProj | Projects | Help Us? | Privacy | About Us | Search | Log In
This activity ended in 1999. For information only.

HOOKED ON BOOKS

[ English ] [ Macedonian ]

VERKEFNI: Lestrarhestur

TÍMABIL: Frá 11.janúar til 22. mars 1999

 

TILGANGUR:

Að opna augu barna fyrir því sem gerir bækur aðlaðandi og fá

þau til þess að deila hrifingu sinni með bekkjarfélögum og nemendum

hvar sem er í heiminum með því að nota tölvupóst og veraldarvefinn.

Að þau fái viðbrögð við skrifum sínum og skiptist á skoðunum með hjálp

tölvupósts.

Að hvetja börn til þess að auka lestur sinn og reynslu með því að kynnast

nýjum rithöfundum og bókmenntagreinum.

 

MARKMIÐ:

1. Að læra að greina og fjalla um einkenni bókar

2. Að skrifa skapandi og sannfærandi andsvar öðrum til hvatningar.

3. Að lesa tölfupóst og svara athugasemdum frá öðrum.

4. Að lesa bækur eftir nýja höfunda og bækur sem félagar þeirra um allan heim

mæla með.

 

ÁHERSLUATRIÐI Í KENNSLU:

Tilgangurinn er sá að umfjallanir verði skapandi viðbrögð barna við

bókunum, sem þau hafa lesið, frekar en eftirlíkingar þess sem fullorðið

fólk skrifar.

Að ræða við börn um hvað gerir umfjöllun góða og hverju þau eigi að taka

eftir á meðan þau lesa.

Að örfa þau til að vinna í litlum hópum eða pörum að því að skrifa umfjölllun

til þess að þau öðlist nægilegt sjálfstraust til þess að skrifa

ein og óstudd.

Hér fyrir neðan eru hugmyndir frekar en stífur rammi fyrir hverja umfjöllun.

 

FYRIR SÖGU- OG MYNDABÆKUR:

Drepa á eftirtektarverð atriði í sögunni án þess að láta allt uppi.

Hvers vegna valdirðu þessa bók?

Hvaða hluta heldur þú mest upp á og hvers vegna?

Er persónum og stöðum lýst þannnig að það sé trúverðugt eða þannig að

frásögnin fangi athygli þína og veki hugmyndaflugið?

Er framvindan í sögunni hröð?

Er orðafar hugmyndaríkt, torskilið eða auðlesið?

Hvað finnst þér um myndskreytingar (ef einhverjar eru)?

Var eitthvað í sögunni sem kom þér á óvart?

Hefur sagan breytt einhverju um það, hvernig þú lítur á vandamál eða

persónu?

Hvar gerist sagan? Hversu mikilvægt er það?

Hefurðu áhuga á að lesa meira eftir sama höfund eða bók úr sama flokki?

Hvað myndir þú segja við besta vin þinn um þessa bók, ef þig langaði til

þess að fá hann til að lesa hana?

FYRIR FRÆÐIBÆKUR:

Hvernig eru upplýsingar settar fram?

Er auðvelt að finna þær og fylgja þeim.

Er bókin auðlesin og auðskiljanleg?

Hvað olli því, að þú valdir þessa bók og metur hana mikils?

Hjálpar þessi bók þér að læra meira um eitthvert efni? Hvernig gerir

hún það?

Hefur þessi bók orðið þér hvati til þess að gera eitthvað, t.d. reyna

nýtt áhugamál, ganga í samtök, hugsa um vandamál á nýjan hátt, lesa

fleiri bækur um sama efni?

Hægt er að nálgast efnið á annan hátt eins og lýst er hér að neðan:

"Danny, Champion of the World" eftir Roald Dahl.

Hver er Danny?

Af hverju býr hann í húsbíl?

Hvar lendir faðir hans, þegar hann hverfur á dularfullan hátt að

næturlagi?

Af hverju er Danny að aka ólöglega um miðnætti?

Hvaða samband er milli fasana, pappírshatta og rúsína?

Af hverju froðufellir Hazell?

Hvaða undarlegu hlutir gerast undir teppinu í barnavagninum?

Lesið "Danny, Champion of the World" eftir Roald Dahl og komist að

því sjálf. Þetta er ekki bók sem hent er út um gluggann þegar rignir.

 

UMSAGNIRNAR:

Í hverri umsögn verður að koma fram nafn bókar og rithöfundar,

ISBN númer, skapandi viðbrögð og hvetjandi skilaboð ásamt ábendingum

um það, hvaða aldursflokkur og manngerð gæti haft ánægju af lestri hennar.

Börnin á að hvetja til þess að lesa nokkrar umsagnanna og til þess að

láta í ljós álit sitt við höfunda þeirra í töluvpósti.

 

HVERNIG ER HÆGT AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSU VERKEFNI

1. Hægt er að gerast áskrifandi með tölvupósti. Það er gert með því að

senda setninguna:

subscribe kidproj <nafn> <föðurnafn>

til:

listserv@listserv.nodak.edu

2. Kennarar gerast áskrifendur með tölvupósti á sama netfang:

listserv@listserv.nodak.edu

subscribe kidproj-coord <nafn> <föðurnafn>

3. Öll börn og unglingar verða að svara spurningunum fjórum áður en þeir

verða fullgildir þátttakendur í Kidlink.

4. Þau eiga að skrá sig hjá Jane Brock at school04.guernsey.net

Nafn

Kyn

Aldur

Skóli, nafn, heimilisfang

Land

Netfang

5. Þátttakendur eiga helst að senda fullgerðar umsagnir fyrir febrúarlok

svo aðrir krakkar hafi tíma til þess að lesa þær bækur, sem með er

mælt, gera við þær athugasemdir og svara athugasemdum annarra.

 


Web page coded by Nigel Palmer, school home page Manor Park Primary School, Coventry , ENGLAND


Information Contact: Patti Weeg, Title 1 Computer Teacher, Delmar El. School, Delmar, Maryland, USA. Homepage: http://www.globalclassroom.org

KIDPROJ WWW Contact: Diane Smith, Internet Facilitator, Kent Learning Center, Seattle, WA, USA, Homepage:http://www.halcyon.com/maywood

*   Go to the KIDLINK Home Page       *    Return to KIDPROJ Current Project Page


KIDS-99, the KIDLINK name and associated logo are service marks of the KIDLINK Society.

Copyright ® 1998 Kidlink. All rights reserved.


Created August 1, 1998